Tilkynningar
#TakeTheActiveOption
Kæri viðtakandi/lesandi Evrópsku Lungnasamtökin (ELF) eða European Lung Foundation (ELF) munu standa fyrir átaksverkefninu Healthy Lungs for Life sem útleggst sem Heilbrigð lungu alla ævi, #TakeTheActiveOption nú í September. Áskorunin felur í sér að hvetja fólk til að hreyfa sig minnst 21 mínútu á dag eða um 150 mínútur á viku til að draga athyglina að kostum þess að hreyfa sig til að vernda lungu en einnig til að safna áheitum fyrir samtökin. Allir geta skráð sig og tekið þátt, hægt er að taka þátt sem einstaklingur en einnig sem hluti af hópi, með fjölskyldu, vinum eða vinnufélögum. Hreyfing hefur góð áhrif á lungnaheilsu. Alþjóða heilbrigðismálastofnunn (WHO) mælir með því að við hreyfum okkur 150 mínútur á viku, það er aðeins 21 mínúta á dag!
REYKJAVÍKUR MARATON ÍSLANDSBANKA 2021 |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO















Undirrituð er að leita að þátttakendum til þess að fara yfir þýðingu á matstækinu 5-D kláðakvarði sem notaður er til að leggja mat á kláða. Rannsóknin er meistaraverkefni undirritaðrar við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Leiðbeinendur eru Dr. Brynja Ingadóttir og Dr. Sigríður Zoëga.
Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 1. júní kl. 17:15, í húsakynnum SÍBS Síðumúla 6, 2. hæð.







