Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1

Glutenlaus súkulaði kaka

Guðdóm­lega góð glút­en­laus súkkulaðikaka með ekta súkkulaðikremi

  • 100 g syk­ur
  • 140 g glút­en­laust mjöl sem hægt er að skipta 1:1 út fyr­ir hveitisúkuladikaka án gluten
  • 40 g kakó
  • 1 tsk. vín­steins­lyfti­duft
  • 1 tsk. mat­ar­sódi
  • ½ tsk. salt
  • 1 stórt egg
  • 60 ml olía
  • 120 ml mjólk
  • 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 120 ml sjóðandi vatn

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 175°C blást­ur.
  2. Smyrjið eitt 20 cm smellu­form og setjið til hliðar.
  3. Setjið syk­ur, glút­en­laust mjöl, kakó, vín­steins­lyfti­duft, mat­ar­sóda og salt sam­an í skál og hrærið í með písk.
  4. Bætið þá eggj­um, olíu, mjólk, sítr­ónusafa og vanillu­drop­um sam­an við og hrærið þar til deigið er komið sam­an.
  5. Hellið sjóðandi vatni út í deigið og hrærið þar til deigið er orðið sam­fellt.
  6. Hellið deig­inu í formið, setjið í ofn­inn og bakið í 25-30 mín­út­ur.
  7. Passið að baka hana ekki of lengi því þá er hætt við að hún verði þurr.

Súkkulaðikrem

  • 100 g mjólk­ursúkkulaði frá Ra­punzel
  • 80 g 70% súkkulaði frá Ra­punzel
  • 50 g smjör
  • 100 ml rjómi
  • ¼ tsk. salt
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð:

  1. Saxið súkkulaði og setjið það ásamt rest­inni af inni­halds­efn­um í pott og bræðið sam­an.
  2. Blandið það vel sam­an með töfra­sprota og skafið með sleikju í skál og látið kólna.
  3. Látið kök­una kólna og smyrjið krem­inu yfir all­an botn­inn.
  4. Skreytið eft­ir smekk, Valla notaði fersk jarðarber.

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO