Tilkynningar

DÁSAMLEGUR MATUR SEM ALLIR GETA NOTIÐ Hin breska Alice Sherwood er...
Opnunartími skrifstofu
Gerast félagi
ao vidbragsaaetlun hnappur

Skráning á póstlista

Minningarkort
Tímarit
Fræðslumyndbönd
Medic Alert
SÍBS

 

 

 ht logo big neg1
08. Des 2025

Astma- og ofnæmisfélag Íslands tekur þátt í vitundarvakningu um ilmefnanotkun

SAMSTARF A4 SKILTI til utprentunar copy 2

Astma- og ofnæmisfélag Íslands tekur þátt í samstarfsverkefni Samtaka um áhrif umhverfis á heilsu (SUM) um vitundarvakningu varðandi notkun ilmefna á vinnustöðum og opinberum svæðum. Markmið verkefnisins er að draga úr óþægindum og heilsutengdum vandamálum sem ilmefni geta valdið, sérstaklega fyrir fólk með astma og ofnæmi.

SUM hefur unnið að hönnun jákvæðra og hvetjandi skilaboða sem minna á ilmfrjáls svæði, og hafa samtökin nú þegar afhent fyrstu skiltin, meðal annarra hefur framkvæmdastjóri ÖBÍ tekið við þeim fyrir hönd ÖBÍ.

Astma- og ofnæmisfélag Íslands hefur tekið virkan þátt í samtalinu og mun kynna verkefnið í næsta tölublaði AO en jafnframt munu SUM og AO vinna sameiginlega að frekari útbreiðslu skiltanna.

Auk ÖBÍ er stefnt að því að setja upp skilti hjá fjölmörgum stofnunum, þar á meðal Heilbrigðisráðuneytinu, Umhverfis- og orkustofnun, sundlaugum í Reykjavík, skólum, íþróttafélögum og hjá öðrum opinberum aðilum.

Markmiðið er að skapa heilnæmara umhverfi og tryggja að boðskapurinn nái sem víðast.

Fríða Rún Þórðardóttir, formaður AO, segir að félagið sé þakklátt fyrir samstarfið og hlakki til að taka þátt í framhaldinu:

"Við viljum gjarnan vera með í þessu mikilvæga verkefni og erum þakklát fyrir gott samstarf og frumkvæðið sem SUM hefur sýnt."

Hægt er að skoða skiltin og fylgjast með verkefninu á vef og samfélagsmiðlum SUM og á miðlum AO

Póstlisti AO

Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO