Tilkynningar
Fundargerð Aðalfund 2025
Aðalfundur Astma- og ofnæmisfélags Íslands vegna 2024 Borgartún 28a, 27. maí 2025, kl. 17:00-18:30. Mætt: Fríða Rún Þórðardóttir, Sólveig Skaftadóttir, Guðrún Erla Þorvaldsdóttir, Hanna Regína Guttormsdóttir, Selma Árnadóttir, Hanna Regína Guttormsdóttir, Hermann Arnar Austmar, Tonie Gertin Sörensen. Forföll boðuðu: Harpa Rut Hafliðadóttir, Sólrún Melkorka Maggadóttir. Dagskrá aðalfundar 1. Formaður setur fundinn. Formaður bauð fundarmenn velkomna á aðalfund AO vegna 2024. Þá var gengið til dagskrár.
2. Kjör fundarstjóra og skipun fundarritara. Formaður lagði til að Hermann Arnar Austmar yrði fundarstjóri og samþykkti fundurinn og Hermann það einróma. Hermann stakk upp á ritara AO, Hörpu Rut Hafliðadóttur, sem fundarritara og var það samþykkt samhljóða. Fundarstjóri þakkaði traustið og gekk til dagskrár. Hann úrskurðaði aðalfundinn löglegan þar sem löglega hafi verið til hans boðað. Fundurinn var auglýstur þann 19. maí á heimasíðu AO og facebook síðu auk þess sem allir félagar fengu boð um fundinn með tölvupósti. Áminning var send út 26. maí á alla félagsmenn og stofnaður var viðburður á FB.
3. Fundargerð Farið var yfir fundargerð síðasta aðalfundar sem var samþykkt samhljóða. Fundargerðir aðalfunda eru nú birtar á heimasíðu AO (www.ao.is / um félagið).
4. Skýrsla stjórnar Formaður flutti skýrslu stjórnar (4 bls) og stiklaði á stóru um starfsemi liðins árs og var hún samþykkt samhljóða. Skýrsla stjórnar eru nú birtar á heimasíðu AO (www.ao.is / um félagið).
5. Skýrsla gjaldkera Gjaldkeri fór yfir rekstrarreikning vegna ársins 2024. Á árinu 2024 gekk áfram vel að afla styrkja sem er grundvöllur fyrir því að ýmiss verkefni félagsins komist til framkvæmda og hlutust styrkir frá ÖBÍ, Lýðheilsusjóði og Heilbrigðisráðuneytinu (safnliðir fjárlaga). Rekstur er því í góðu jafnvægi. Samkvæmt efnahagsreikningi voru tekjur af reglulegri starfsemi kr 8.024.637 kr samanborið við 5.5 milljónir árið á undan. Skýringar á þessari miklu hækkun voru mun betri heimtur á félagsgjöldum eða um 400.000 kr meira en árið á undan, tekjur af útgáfustarfsemi (AO blaðinu) voru 300.000 kr meiri 2024 en 2023 og styrkir hækkuðu sem nam 1,4 milljón. Hluti af þeirri fjárhæð var styrkur, eyrnamerktur Sérnámi í ofnæmis- og ónæmisfræðum sem kom úr dánarbúi Hallbjörns Kristinssonar. Árið 2024 var rekstrarkostnaður lægri sem nam 680.000 kr Tekjur af innistæðum voru 2.555.376 kr samanborið við 3.010.500 árið á undan. Hagnaður nam 2.938.486 kr samanborið við 255.723 árið og var sá mesti síðan 2021. Við árslok námu eignir félagsins 53.719.592 kr samanborið við 50.7 milljónir 2023 og 50.3 milljónum 2022. Eigið fé og skuldir samtals 53.719.592 kr við árslok auk 920.000 kr kröfu á Styrktarsjóð AO.
6. Skýrslur nefnda og sjóða Skýrsla um starfsemi Styrktarsjóðsins var flutt af formanni.
7. Umræður um skýrslur. Ársreikningar bornir upp. Ársreikningurinn var borinn upp með fyrirvara um breytingar á heiti félagsins í ársreikninguna og samþykktur samhljóða sem og skýrsla stjórnar AO.
8. Ákvörðun félagsgjalda sbr. 6. gr. Staða félagsins gagnvart innheimtu félagsgjalda var rædd og lýst ánægja með hversu vel tókst við innheimtu 2024. Formaður lagði til að félagsgjaldið yrði óbreytt, 3.000 kr fyrir almennan félaga og 1.500 kr fyrir lífeyrisþega og börn 18 ára og yngri.
9. Lagabreytingar Engar formlegar lagabreytingar lágu fyrir þessum fundi en lagt til að fyrir næsta aðalfund verði 4. grein liður b um tilgang félagsins, endurskoðuð, þar sem stendur „Að vinna að því að koma upp lækningamiðstöð með sérhæfðu starfsliði fyrir öndunarfæra- og ofnæmissjúklinga.“ Einnig að endurskoða 6. grein um félagsgjöld, og fella út að „ævifélagar greiða tífalt árgjald“. Að lokum að stjórn muni ákvarða varðandi skráningu félagsins á almannaheilla skrá en tillaga um það kom frá endurskoðanda auk þess sem sífellt fleiri félög, til að mynda Samtök lungnasjúklinga, hafa nýtt sér það með góðri raun.
10. Formannskjör Fundurinn stakk upp á sitjandi formanni, Fríðu Rún Þórðardóttur, sem áframhaldandi formann AO. Fundurinn tók undir og samþykkti tillöguna samhljóða. Fríða Rún þakkaði traustið.
11. Kjör tveggja meðstjórnenda. Selma Árnadóttir var kjörin í stjórn til tveggja ára og sömuleiðis Harpa Rut Hafliðadóttir. Núverandi stjórn er því. Fríða Rún Þórðardóttir formaður, Selma Árnadóttir varaformaður, Harpa Rut Hafliðadóttir ritari, Sólrún Melkorka Maggadóttir (læknir) og Hermann Arnar Austmar. 12. Kjör þriggja varamanna Guðrún Erla Þorvarðardóttir, Sólveig Skaftadóttir og Sif Hauksdóttir voru kjörin til eins árs.
13. Kjör tveggja skoðunarmanna og eins til vara. Skoðunarmenn eru Sólveig Hildur Björnsdóttir og Hanna Regína Guttormsdóttur. Ari Víðir Axelsson er áfram varamaður.
14. Stjórnarkjör Styrktarsjóðs (kt: 650202-3680) Samkvæmt lögum Styrktarsjóðsins er formaður AO sjálfkjörinn í formannssæti sjóðsins, það embætti helst því óbreytt. Stjórnina skipa nú auk formanns AO, Dagný Erna Lárusdóttir, Sólrún Melkorka Maggadóttir (læknir), Sólveig Skaftadóttir og Björn Rúnar Lúðvíksson (læknir). Varamenn eru Björn Árdal (læknir), Hanna Regína Guttormsdóttir og Tonie Gertin Sørensen.
15. Aðrar kosningar Engar aðrar kosningar fóru fram.
16. Önnur mál. Formaður þakkaði fundarstjóra, Hermanni Arnari, fyrir fundarstjórnina og fundarmönnum fyrir þátttökuna og málefnalegan fund.
Formaður sleit fundi kl. 18:30
Fundargerð ritaði Fríða Rún Þórðardóttir |
Póstlisti AO
Fáðu sendar tilkynningar og fréttir af starfi AO




















