Fyrirspurnir : Veftré : Leturstærð     
Heim

12/12 2007

Og hvað gerir þú góða

Sóley Björk

Sóley Björg Axelsdóttir skrifar í tilefni af alþjóðalegum degi fatlaðra.

Það virðist vera viðtekin venja í þessu þjóðfélagi okkar að meta fólk út frá atvinnu þess frekar en mannkostum. Enn þann dag í dag eru margir sem vinna allt að því þrefalda vinnu og finnst þannig verði/eigi það að vera. Það þýðir auðvita að skólarnir ala að miklu leyti upp börnin okkar og við kvörtum yfir að hafa ekki tíma til neins.

En er rétt að gera þetta? Þurfum við að eiga allt það dýrasta og flottasta?

Kröfurnar í þjóðfélaginu segja okkur að svona eigi þetta að vera, en munum eitt:

Við erum þjóðfélagið, við setjum okkur og öðrum þessar viðmiðanir og við getum breytt þeim ef við viljum. Stundum getur það komið fyrir að einstaklingur þarf sökum veikinda eða fötlunar einhvers konar að hætta í þeirri vinnu sem hann var í eða minnka við sig. Þetta veit ég að er afskaplega erfið aðstaða að vera í.

Erum við sem höfum lent í þeirri afstöðu eitthvað öðruvísi en aðrir, sem einstaklingar? Hvernig skilgreinir þjóðfélagið okkur? Hvernig skilagreinum við okkur sjálf?

Lífið er ekki búið þó svo að við þurfum að skipta um starfsvettvang eða breyta lífi okkar á einhvern hátt. En hvernig veljum við okkur starf? Menntun hefur mikið að segja, áhugamál líka, einnig líkamleg og andleg geta. Allt þetta og meira til þurfum við að hafa í huga þegar við veljum okkur starfsvettvang.

Mér finnst alltof algengt í þjóðfélaginu í dag að vinnufært fólk sem hefur „orðið“ öryrkjar gefst upp þegar atvinnan sem það var í hentar ekki lengur. Það á ekki að vera nauðsynlegt að leggja bara upp laupana. Við getum jú ýmislegt gert líka!

3. desember er alþjóðadagur fatlaðra og í ár eru eikunnarorðin „ Atvinna við hæfi fyrir fólk með fötlun“. Í tilefni þess efndi Sjálfsbjörg , landssamband fatlaðra, í samstarfi við verslanir í Kringlunni, til atvinnuverkefnis sem fólst í því að hópur fatlaðra einstaklinga dreifði sér í nokkrar verslanir í Kringlunni og „ starfaði“ þar í tvo dag.

Þetta mæltist vel fyrir og tókst í alla staði mjög vel og held ég að við höfum sýnt almenningi að við getum ýmislegt þótt við séum fötluð.

Það er öllum mikilvægt, fötluðum jafnt sem öðrum, að hafa atvinnu við hæfi.

Þannig fáum við tækifæri til að finna tilgang í lífinu og hafa reglulega samskipti við annað fólk. Einangrun er nefnilega eitt það versta sem nokkur maður getur upplifað. En munum bara að atvinna er ekki það eina sem við getum gert til að öðlast sönn lífsgæði.

Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka þeim sem starfaði með í Hagkaupum sérvöru um helgina fyrir skemmtilegt samstarf. Verslunareigendum í Kringlunni og Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra, starfsmönnum þess og sjálfboðaliðum sem að verkefninu unnu þakka ég líka fyrir að hafa komið þessu á og vona að við fáum aftur tækifæri til að gera eitthvað svipað síðar.

Svo vil ég enda á að óska öllum landsmönnum heilsu og vona að allir komist klakklaust í gegnum jólaundirbúninginn sem nú fer senn í hönd.

 

Höfundur er félagi í Sjálfsbjörg

 
Senda síðu
Spuni hugbúnaður © 2003
Heim : Til baka : Upp